top of page
Lysir 3.jpg

Sagan okkar

Lýsir ehf var stofnað árið 2017 af Rafal ehf. ásamt Pétri Hrafnssyni, sem lagði grunn að þeirri hugmyndafræði sem fyrirtækið byggir á í dag.

 

Allt frá upphafi hefur starfsemi Lýsir mótast af þeirri skýru sýn að heimurinn sé orðinn einn opinn markaður þar sem mikilvægt sé að sameina þekkingu, þjónustu og framkvæmd. Í tæknivæddum heimi, þar sem hraði, samþætting lausna og áreiðanleiki skipta sköpum, þarf að hugsa heildrænt og komast að niðurstöðu sem að allir, sem að verkefnunum vinna, séu ánægðir með. Framúrskarandi þjónusta er því ekki viðbót, heldur forsenda árangurs.

 

Kjarninn í starfsemi Lýsir hefur ávallt verið einfaldur:

  • að byggja upp langtíma viðskiptasambönd

  • að taka auka skrefið þegar á reynir

  • að skila lausnum sem spara viðskiptavinum bæði tíma og peninga

 

Með sterkri fagþekkingu og áralangri reynslu hefur Lýsir byggt upp öfluga markaðsstöðu á sviði ljósleiðara og tengdra lausna.  Félagið nýtur trausts viðskiptavina sem hefur áunnist með stöðugleika, ábyrgð og vönduðum vinnubrögðum.

 

Eitt af langtímamarkmiðum okkar í Lýsir, hefur verið að hasla okkur völl á gagnaveramarkaðnum og undanfarin ár hefur sú vegferð skilað árangri. 

Með markvissri uppbyggingu, skýrum verkferlum og sterkri þjónustulund hefur Lýsir fest sig í sessi sem traustur samstarfsaðili í uppbyggingu gagnavera og tækniinnviða, bæði innanlands og erlendis.

 

Frá árinu 2022 hefur Lýsir tekið stór skref fram á við. Áhersla hefur verið lögð á að byggja upp öflugt teymi sérfræðinga sem deila sömu sýn og gildum. 

Í dag stendur Lýsir á traustum grunni, með djúpa þekkingu á ljósleiðara, tengdum vörum, varaafli og skipulagningu innviða þar sem áreiðanleiki og vönduð vinnubrögð skipta sköpum.

 

Lýsir er í dag hratt vaxandi og öflugt fyrirtæki, en kjarnahugsunin er sú sama og árið 2017. Hjá Lýsir byggjum við árangur á heiðarleika, ábyrgð og því að gera hlutina rétt, líka þegar enginn er að horfa.

 
IMG_8654.HEIC
lager1.jpg
LYSIR1YEAR-25.jpg
bottom of page