Stefnur og yfirlýsingar
Persónuverndarstefna
Við hjá Lýsir ehf. leggjum okkur fram við að meðferð allra persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd. Við söfnum einungis þeim upplýsingum sem nauðsynlegar teljast vegna starfsemi okkar og þeirra samskipta sem við eigum við okkar viðskiptavini. Þessar upplýsingar geta verið mismunandi eftir eðli samskipta við hvern og einn viðskiptavin. Allar upplýsingar eru varðveittar á öruggan hátt og aðgangur að þeim er takmarkaður við starfsmenn sem þurfa á þeim að halda við störf sín.
Við miðlum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema með sérstöku samþykki viðkomandi viðskiptavinar. Viðskiptavinir eiga ávallt rétt á aðgangi að eigin upplýsingum, ósk um leiðréttingu þeirra eða að upplýsingum þeirra verði eytt úr gagnagrunni.
Með þessari stefnu skuldbindur Lýsir ehf. sig til að tryggja ábyrga og gagnsæja meðferð persónuupplýsinga í öllum verkefnum sínum.
Umhverfisstefna
Hjá Lýsir ehf. er ábyrgð gagnvart umhverfinu mikilvægur þáttur í starfseminni. Við leggjum okkur fram við að lágmarka öll neikvæð áhrif sem við höfum á okkar nærumhverfi og erum í stöðugu sambandi við okkar birgja um að þessari stefnu sé mætt eftir fremsta megni.
Við leggjum áherslu á:
-
að nýta auðlindir á ábyrgan og hagkvæman hátt
-
að draga úr sóun og stuðla að endurvinnslu
-
að minnka losun og orkueyðslu þar sem kostur er
-
að velja umhverfisvænar lausnir í innkaupum og rekstri
-
að hvetja starfsfólk og samstarfsaðila til umhverfisvitundar
Samfélagsleg ábyrgð
Hjá Lýsir ehf. leggjum við áherslu á að reka fyrirtækið á ábyrgan hátt þar sem jafnvægi er milli hagnaðar, samfélags og umhverfis. Við trúum því að góð fyrirtækjamenning, virðing fyrir fólki og ábyrg nýting auðlinda séu forsenda langvarandi árangurs.
Við skuldbindum okkur til að:
-
virða mannréttindi og jafnrétti í allri starfsemi
-
tryggja heiðarleika og gagnsæi í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila
-
stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið þar sem við störfum
-
vernda umhverfið og taka ákvarðanir með sjálfbærni að leiðarljósi
-
hvetja starfsfólk til samfélagslegrar þátttöku og samstöðu
Með þessum áherslum viljum við skapa traust, stuðla að sjálfbærri þróun og leggja okkar af mörkum til betra samfélags.
Mannréttindayfirlýsing
-
Hjá Lýsir ehf. leggjum við ríka áherslu á að virða og styðja mannréttindi í allri starfsemi okkar. Við skuldbindum okkur til að fylgja gildandi lögum og alþjóðlegum mannréttindasáttmálum, og tryggjum að viðskiptahættir okkar séu ávallt í samræmi við ábyrg viðskiptasiðferði.
-
Við tökum ekki þátt í, né styðjum við, neinskonar mismunun, nauðungarvinnu eða barnaþrælkun. Við leggjum áherslu á jafnrétti, virðingu og heiðarleika gagnvart starfsmönnum, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og samfélaginu í heild.
-
Stefnan er órjúfanlegur hluti af samfélagslegri ábyrgð Lýsir ehf. og leiðarljós í ákvarðanatöku okkar og framtíðarsýn við val á birgjum og öllum þeim sem starfa í okkar nafni.