Birgjar
Við vinnum með hágæðaframleiðendum

Ljósleiðari
Corning er leiðandi fyrirtæki í glerframleiðslu með 170 ára sögu og nátengingu við tækniheiminn. Fyrsta hönnun þeirra var samstarf við Thomas Edison við hönnun ljósaperunnar.
Ásamt framleiðslu á ljósleiðara framleiðir Corning gler fyrir, snjallsíma, sjónvörp og geimflaugar svo eitthvað sé nefnt.

Rör
Emtelle er traustur og góður framleiðandi að blástursrörum. Rörin frá Emtelle hafa verið notuð um árabil á Íslandi með góðum árangri.

Tengiefni
HellermannTyton býður upp á vandaðar lausnir fyrir bæði staðarnet og ljósleiðarakerfi, allt frá gagnaverum að ljósleiðarakerfum fyrir heimili

Ljósleiðaratengivélar
Sumitomo Electric er einn fremsti framleiðandi heims í ljósleiðaratengivélum.

FTTO Lausnir
Microsens er tæplega þriggja áratuga fyrirtæki sem er leiðandi í FTTO lausnum á heimsvísu. Með mikilli þekkingu og reynslu hefur Microsens tekið forskot og frumkvæði í innleiðingu nýrrar og væntanlegrar tækni til að mæta sívaxandi kröfum nútímans og framtíðarinnar.

Varaaflgjafar
CyberPower hefur í rúm 25 ár selt milljónum viðskiptavina um allan heim lausnir og búnað sem er verðlaunaður fyrir tækni og gæði og veitir viðskiptavinum vissu um að þeir hafi valið rétt með því að velja varaafl frá CyberPower.

Mælitæki
Háþróaðir ljósleiðaramælar frá VIAVI tryggja stöðugan og öruggan rekstur viðkvæmra ljósleiðarakerfa. Tækin frá Viavi eru hönnuð til að gera þér kleift að vinna verkið rétt frá byrjun og sjá til þess að allt virki eins og til sé ætlast.

Varaaflgjafar
FIAMM Energy Technology er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og dreifingu iðnaðarrafhlaðna og rafgeyma fyrir kröfuhaarðan iðnað. Við bjóðum upp á áreiðanlegar og fjölbreyttar FIAMM-lausnir sem hafa endingartíma í allt að 10 ár.