Lýsir Nordic
- Jan 30
- 1 min read
Updated: Feb 26

Í desember 2025 var gengið frá stofnun dótturfélags Lýsir ehf. í Finnlandi, Lysir Nordic OY. Þetta er gert vegna aukinna umsvifa Lýsir á norðurlöndunum og á ESB svæðinu. Lysir Nordic mun sjá um innkaup, flutning og þjónustu við viðskiptavini okkar í Finnlandi til að byrja með og erum við spennt að sjá hvernig þetta verkefni þróast hjá okkur.


