top of page

Uppfærsla á vörumerki og markaðsefni

  • Feb 4
  • 1 min read

Updated: Feb 26

Lýsir hefur verið í samstarfi við auglýsingastofuna Maura um að endurhanna vörumerki fyrirtækisins og í kjölfarið að taka heimasíðuna í gegn ásamt öðru markaðs- og kynningarefni. Markmiðið var að skerpa á og einfalda ásýndina til að færa hana nær þeim áherslum sem við leggjum upp með í dag. Endurhönnunin endurspeglar vel þá þróun sem einkennir starfsemi Lýsir og þá vegferð sem fyrirtækið er á. Þessi andlitslyfting var nauðsynleg að okkar mati og lítum við glaðari í spegilinn á hverjum morgni. Samstarfið við Maura var einstaklega gott og við þökkum þeim af heilum hug fyrir þeirra hugmyndavinnu og framkvæmdagleði í gegnum allt ferlið.

 
 
bottom of page