Lýsir vekur athygli Corning fyrir frábæran árangur
- Jan 30
- 1 min read

Lýsir varð þess heiðurs aðnjótandi að móttaka verðlaun frá Corning fyrir framúrskarandi vöxt árið 2024. Þessi verðlaun frá Corning staðfesta það sem viðskiptavinir og samstarfsaðilar Lýsir þekkja vel:
Framúrskarandi þjónusta, djúp sérþekking og áreiðanlegar lausnir fyrir innviði gagnavera, bæði innanlands og erlendis.
Fyrir lítið íslenskt fyrirtæki í sérhæfðum geira er þetta ómetanleg viðurkenning. Hún ber vott um elju og metnað ótrúlegs teymis okkar og endurspeglar traustið sem við njótum hjá frábærum samstarfsaðilum sem trúa á það sem við stöndum fyrir.


