Lýsir í Finnlandi með forsetanum
- Jan 30
- 1 min read

Í tengslum við undirbúninginn að stofnun Lysir Nordic OY í Finnlandi fengum við tækifæri til að fylgja forseta Íslands ásamt eiginmanni sínum í opinbera heimsókn til Finnlands dagana 7. og 8. október 2025. Ferðin var okkur í Lýsir kærkomin þar sem unnið var að stofnun dótturfélags Lýsir í Finnlandi og nýttum við þessa daga til að efla og dýpka tengsl okkar við gagnaveramarkaðinn þar í landi. Með í för var viðskiptasendinefnd leidd af Íslandsstofu ásamt fulltrúum 25 fyrirtækja á sviði orkumála, hátækni og leikjaiðnaðar.
Við getum með sanni sagt að þetta hafi verið mjög vel heppnuð ferð í alla staði og gaf okkur tækifæri á að kynna okkur og okkar starfsemi ásamt því að styrkja tengsl við viðskiptalífið, bæði hér heima og í Finnlandi.


