top of page

Tækniskólinn í heimsókn

  • Feb 4
  • 1 min read

Updated: 8 hours ago

Við hjá Lýsir fáum reglulega heimsóknir frá forvitnum og fróðleiksfúsum nemendum úr skólakerfinu.  Þann 26. nóvember fengum við 13 nemendur á þriðja ári rafvirkjunar frá Tækniskólanum í heimsókn ásamt Sigurði kennara þeirra og fengu þeir að okkar mati og vonandi þeirra líka, hinar fínustu móttökur. Við gerðum allt okkar til að reyna að fræða, skemmta og miðla ljósleiðaratrúnni okkar áfram til komandi kynslóðar og auk fyrirlestrar, sýnikennslu og misvel heppnaðra brandara svona snemma dags, fengu þeir að splæsa saman ljósleiðara og fórst þeim það flestum vel úr hendi. Við þökkum Tækniskólanum kærlega fyrir komuna.

 
 
bottom of page